Um okkur

Stofnandi, framkvæmdastjóri og aðalráðgjafi

Ágúst Snær

Ágúst Snær er drifkrafturinn á bak við Lagnaflæði

Sem stofnandi og helsti ráðgjafi fyrirtækisins í lagna- og frárennslismálum, býr hann yfir víðtækri reynslu sem tryggir viðskiptavinum okkar fagleg vinnubrögð og öruggar lausnir.

Ágúst starfar jöfnum höndum sem verkefnastjóri og on-site manager, sem þýðir að hann heldur ekki bara utan um skipulagið á skrifstofunni heldur fylgir verkefnum eftir á vettvangi. 

Með því að vera til staðar þar sem verkin gerast tryggir hann að farið sé eftir ströngustu gæðakröfum og að samskipti milli verkkaupa og iðnaðarmanna séu ávallt skýr og skilvirk.

Sérsvið Ágústs:
  • Heildarráðgjöf um lagnakerfi og frárennsli.
  • Verkefnastjórnun og eftirlit á framkvæmdastað.
  • Greining og lausnamiðuð ráðgjöf.
Stofnandi og framkvæmdastjóri

Hrafnhildur Lind

Hrafnhildur Lind er stofnandi Lagnaflæðis og stýrir daglegum rekstri fyrirtækisins. 

Sem framkvæmdastjóri sér hún til þess að öll hjól atvinnulífsins snúist á réttum hraða og að fyrirtækið standi ávallt undir nafni þegar kemur að áreiðanleika og gæðum.

Hrafnhildur er tengiliðurinn okkar út á við; hún sér um samskipti við birgja og viðskiptavini og leggur ríka áherslu á persónulega þjónustu og skilvirkni. Hennar hlutverk er að brúa bilið á milli þarfa viðskiptavina og lausna okkar, auk þess að tryggja að aðfangakeðjan sé ávallt til fyrirmyndar svo verkefni geti gengið snurðulaust fyrir sig.

Helstu áherslur Hrafnhildar:
  • Daglegur rekstur og stjórnun.
  • Samskipti við samstarfsaðila og birgja.
  • Þjónustustýring og gæðaeftirlit í rekstri.
Leit